FRÉTTIR OG GREINAR

fréttir

og greinar

By Komo Veisluþjónusta 08 Apr, 2024
Ástæðan fyrir því að matvagnar eru svo vinsælir í brúðkaupum. Food trucks eða svokallaðir matvagnar hafa orðið sífellt vinsælli í brúðkaupum og hafa skapað ógleymanlega upplifun fyrir mörg brúðhjón. Og ekki að ástæðulausu. Nú á dögum vilja pör upplifa eitthvað einstakt og spennandi og matvagnar bjóða einmitt upp á það. Hefur það til dæmis færst verulega í aukana að fá matvagna í brúðkaup til að bjóða gestum upp á „miðnætursnarl“. En matvagnar bjóða oft upp á fjölbreytta og spennandi rétti. Hvort sem þig langar í sælkerahamborgara, bragðgóð taco, vefjur eða eftirrétti. Að auki eru matarvagnar fjölhæf og þægileg lausn. Þar sem þeir geta lagað sig að hvaða staðsetningu sem er, þurfa oftast litla fyrirhöfn við uppsetningu og geta auðveldlega farið á milli ólíkra staða. Það gefur brúðhjónum frelsi til að velja sýna óska staðsetningu. Vegna þess hversu þétt setnir matvagnar eru á sumrin getur verið ráðlagt að bóka vagn með góðum fyrirvara.
By Komo Veisluþjónusta 26 Mar, 2024
KOMO Veisluþjónusta og Nordic Live Events hafa formlega hafið samstarf. Samstarfið felur í sér að KOMO muni sjá um veitingar fyrir listamenn og tæknifólk á vegum Nordic Live Events. Þá mun KOMO einnig sjá um sölu á veitingum til gesta á völdum viðburðum. Áður hefur KOMO séð um veitingar á Skunk Anansie í Laugardalshöll, Marc Martel - Queen show í Laugardalshöll og Háskólabíó. Næstiu viðburðir sem KOMO Veisluþjónusta mun annast fyrir Nordic Live Events verður The Commitments tónleikasýning í Háskólabíó þann þrítugasta apríl og stórtónleika Madness í Laugardalshöllinni 1. júní.
By Sahara Web 21 Feb, 2024
Undanfarin ár höfum við unnið til fjölda verðlauna fyrir matinn okkar, undir nokkrum mismunandi conceptum sem við höfum áður komið að. Núna seinast undir nafni KOMO veisluþjónustu. Verðlaun: 2018 Götubitaðhátíð Suðurlands 1. Sæti „Besti götu bitinn" Concept- KORE 2019 Icelandic Street Food Awards 2. Sæti „Götubiti" fólsksins“ Concept- KORE 2019 Icelandic Street Food Awards 2. Sæti „Besti götubitinn" Concept- KORE 2020 Icelandic Street Food Awards 2. Sæti „Götubiti fólsksins“ Concept- KORE 2021 Icelandic Street Food Awards 1. Sæti „Besti grænmetisétturinn“ Concept - Chikin 2021 Icelandic Street Food Awards 1. Sæti „Besti smárétturinn“ Concept - Chikin 2023 Icelandic Street Food Awards 1. Sæti „Besti smárétturinn“ Concept - KOMO
Share by: